Ásta og Drekinn ElliðiÁsta Dröfn Björgvinsdóttir

Fékk þessa undarlegu þörf fyrir að blogga, bara alevg uppúr þurru.. Heilinn minn heldur að hann hafi eikkað merkilegt að segja.. látum okkur sjá

Það hefur ekki mikið dregið á daga mína síðan ég bloggaði seinast. Ég er allvega komin heim frá USA.. hehe 

 Versló gekk yfir í einum hamagangi. Og ég er byrjuð að vinna í Dogma again! Læt mér leiðast þar á daginn og svo laumast ég við skúra á kveldin.  

Ég er að fara í 9 einingar í fjarnámi, tvö stæ áfanga og einn efnafræði, ég er að trekkja mig í gang fyrir Háskólan á næsta ári.. Já ég er eimmitt að vinna og í fjarnámi afþví að ég komst ekki inn í HÍ því mig vantaði stærðfræðieiningar til að komast inn á Raunvísindadeild. En hvað með það ég djamma þá bara eitt ár í viðbót á Eyrinni minni.

Síðan er Gunni minn að koma heim í október mér til mikillar gleði.. Maður saknar hans nú stundum. Þannig það verður ósköp gott að fá hingað til sín aftur. Ég er ekki komin með nákvæma dagsetningu ennþá.

Ég komst að því enn einu sinni að ég á alltof mikið af skóm... ég er bara með um 50-60 pör hérna heima og ég held að ég sé með um 50 pör í geymslu hjá pabba... og 70% eru strigaskór hehe... úff hvað á maður að gera við þetta þegar maður flytur í pínulitla stúdentaíbúð??

Annars er bara róleg helgi framundan, þarf samt kannski að taka upp kartöflur með mömmu.. það er alltaf stuð að taka upp kartöflur.. hehe

Jæja nóg komið af ritræpu.. hver veit nema þetta gerist einhverntíman aftur?!?  Dúmmdúmmdúmm

Ásta með hor og slef



Heitt, heitara og svo rigning..Ásta Dröfn Björgvinsdóttir

Lífið gengur sinn vanagang hérna í Flórída, vakna fyrir 8 á morgnana reyndar svaf ég alveg til 11 í morgun, en ég vaknaði fyrst fyrir 8 og síðan sofnaði ég og vaknaði til skiptist þangað til ég nennti á fætur.

Gunni er útskrifaður úr Full Sail og var haldið partý í tilefni þess á laugardaginn.. Og vá hvað það kom mikið af fólki, enda hefur Gunni safnaði að sér úrvals liði hérna úti. Ég fór reyndar frekar "snemma" í rúmmið, var orðin eikkað hálf dösuð en það var til þess að ég vakni eldhress daginn eftir.. Gunni aftur á móti var dauður og fór ekki útúr rúmmi fyrr en 8 um kvöldið, greyið Gunni litli var þunnur hehe

En á föstudaginn, sem var dagurinn sem Guns útskrifaðist fórum við út að borða á veitingastað sem heitir Texas de Brazil og OMG besti matur í heimi!! Úff ég veit ekki hvar ég á að byrja.. Allavega í fyrsta lagi er þessi staður með stærsta og besta salatbar sem ég hef séð, og Humarsúpan vá ég var næstum búin að fylla töskuna mína með henni hehe  En þar er líka besta kjöt í heimi og maður má borða eins mikið og maður vill og getur.. Maður er með spjald sem er rautt öðru megin og grænt hinu megin.. þegar græna hliðin er upp þá koma fullt af gaurum með allskonar kjöt og gefa manni fína bita.. síðan þegar maður er komin með nó kjöt í bili þá snýr maður spjaldinu við.. En maður vildi bara meira og meira og meira og meira... maður vildi ekki hætta að borða.. Kostaði 70 dollara fyrir mig en alveg þess virði.

Annars hefur lítið gerst. Leggjum mjög líklega af stað til Montana á miðvikudaginn eða fimmtudaginn. Erum að pakka niður dótinu okkar og þrífa svona það sem við getum. Gunni er á fullu að tattúa allt fólkið áður en hann fer hehe.. Ég geri ekki annað en að éta er svöng allðetæm.. Jáh held að þetta sé bara nó í bili :)

Sakna ykkar allra

Brotin Tá?Ásta Dröfn Björgvinsdóttir

Já auðvita tókst mér að brjóta á mér tánna. Var nú nokkuð viss um að ég væri ekki brotin en það var mjög vont að stíga í fótin, eins og það er nú oftast eftir að maður sparkar tánni í eikkað.. En mér var illt í allt gærkvöld og svaf síðan mjög takmarkað í nótt. Þannig í morgun klukkan 8 þá ákvað ég að fara uppá slysó, bara svona til að tjékka á essu. Var rétt sest niður þegar það var kallað á mig. Ungur læknir kom síðan og skoðaði mig. Hann tosaði og ýtti allavega á tásurnar mínar (nokkuð viss um að hann sé með smá táfetis hehe) Hann endaði svo á að senda mig í röntgen, en við vosum sámmala um að ég væri nú örugglega ekki brotin. En auðvita var í brotin, ég meina hvað annað.. Ég er nú einu sinni Ásta Dröfn og henni tekst alltaf að gera eikkað svona.  Og í þokkabót þá er þetta táin hliðiná litlu tánni, bara í tvennt!! eða svona ská tvennt!!
Mætti síðan galvösk í vinnuna, en entist ekki mjög lengi var farin heim klukkan hálf 1. Var ekki alveg að meika að vera svona á röltinu fram og til baka og upp og niður stigana. Er núna með nokkuð góðan, stanslausan verk í fætinum. Er ekki alveg að fíla það sko.

En annað í fréttum er ekki mikið. Hálfur mánuður í sveitina, og 4 vikur í Gunna minn
Glottandi Bara nokkrir dagar eftir af vinnunni og mér tekst að brjóta á mér tánna. Maður er svo mikill snillingur!!

Bliss


Já HÆÁsta Dröfn Björgvinsdóttir

Já góða kveldið

Minns var veikur í gær, fór veik heim úr vinnunni sem hefur ekki gerst síðan á tímum KEA dagana.. vaknaði með hálssærindi og slen og endaði með beinverkjum og smá hita.. En hálsinn var góður um kvöldið en aftur slæmur þegar ég vaknaði í morgun.. En eikkert af hinu kom aftur.. Skrítið dæmi

Er núna búin að vera í tölvunni í 3 tíma.. vesenast með ipodin minn, tala við Gunna en mest bara eikkað flakk á myspace og eikkað rugl.. ótrúlegt hvað maður getur eitt tímanum í rugl..

Og hvað er málið með bloggheiminn í dag? Afhverju er fólk að læsa síðunum sínum? eins og mér sé ekki nákvæmlega sama hver les bloggið mitt, oftast er það bara eikkað bull.. Og mér gæti ekki verið meira sama um hver les þau.. Vorkenni bara greyið fólkinu sem nennir að lesa þau hehe..

En annars er fólk mikið hætt að blogga, fólk nennir ekki að standa í þessu rugli lengur. Enda skoða engin þau lengur, því þau eru öll læst..hehe  Ég tek reglulega svona blogg hring athuga hvort að vinir og vandamenn hafi eitthvað merkilegt að segja. Finnst alltaf gaman að lesa hvað aðrir eru að gera og svona.. Þó að ég hafi nú lítið að segja sjálf.. Reyndar er ég með smá fréttir fyrir landann...
Jáhh Hún Ásta Dröfn er búin að sækja um í  skóla og engan annan en Háskóla Íslands!! Og má það vera kallað mikið afrek, hér með hef ég viðurkennt að ég sé að verða fullorðin,.. þarf virkilega að fara að taka mig á.. Hætta þessum barnastælum og bara Grów opp sko..  Nehh ég nenni nú ekki alveg að verða fullorðin strax, en ætla samt að fara í skóla í haust.. Það er að segja ef ég kemst inn.. Vona það náttúrulega og talandi um náttúrulega þá sótti ég um líffræðiskor og þarf að læra einhverja náttúrfræði
Ullandi

Jæja nó í bili

p.s Helga ef ég fæ ekki link núna þá blogga ég aldrei aftur.. ALDREI!!

Að vera eða ekki vera að nenna að skrifa blogg..Ásta Dröfn Björgvinsdóttir

Þar sem ég heyrði blístrulagið í gær þá ákvað ég að skella smá inn hérna á þetta blessaða blogg.

Mikið hefur drifið á daga mína síðan ég bloggaði seinast, það er t.d. komið nýtt ár sem er ekki svo ýkja merkilegt enda gerist það á hverju ári..
En ég fór einnig til útlanda að hitta minn heitt elskaða eigimann, þó að ég kalli hann nú aldrei eiginmann minn þá ákvað ég samt að gera það núna :)  En það var rosalega gott að hitta Gunna, enda alveg 3 mánuðir síðan ég hitti hann seinast. Og ég var valla stigin upp í flugvél þegar ég var búin að ákveða að ég færi aftur um páskan sama hvað það myndi kosta.. Og það mun kosta mig svona 100 þús kell hvorki meira né minna!!
En tímin úti var náttúrulega alltof fljótur að líða.. en hann var vel nýttur í alskonar Túrístadót.. það var náttúrulega farið í Busch gardens, Disney World og Universal Studios.. Fórum einnig í Rippleys bílívít or nott.. Og ekki má gleyma öllum mollunum sem við skoppuðumst í allan daginn, Gunna til mikillar mæðu..
Ekki varð mikil brúnka í þessari ferð þar sem sólin var ekki á sundfötunum. Fórum alveg einu sinni á ströndina og sólin var mest allan tíman bak við ský og sjórinn alveg ísísís kaldur! En samt hafði maður sig í það að stinga tánum  og mest öllum lærunum í hann.. en það framkallaði bara skjálfta :)

Já ég er að reyna að hugsa jákvæðar hugsanir núna, því mér gengur illa að kaupa helv.. farið til Gunna aftur og mig langar pínu til að öskra smá og öskra pínu  meira.. og ekki bætir það úr skák að Brynjar er týndur.. þannig mig langar pínu að hlaupa út og öskra pínu meira.. en í staðinn þá ætla ég að hætta að skrifa þetta blogg og fara upp í rúm og horfa á eitthvað afskaplega skemmtilegt og reyna að fara að sofa, GLÖÐ

Bliss

p.s þetta gæti verið seinasta bloggið mitt í langan tíma, þannig ekki fara í fýlu ef ég skrifa ekkert á næstunnu :) Elska ykkur ÖLL

Okursmokur..Ásta Dröfn Björgvinsdóttir

Var að lesa um 100 færslur á Okursíðu Dr Gunna .. Og ég hef komist að niðurstöðu, við íslendingar erum greinilega alveg stór skrítið fólk, við gerum ekkert annað en að hvarta og hveina (kvarta og kveina?) en við gerum nu ósköð lítið í málinu.. ég man nú ekki fyrir svo löngu að það var eikkað verið að lækka einhverja matarskatta.. en ég held að það hafi nú alveg fallið yfir sig því mér finnst allt vera enn dýrara núna.. , þstta var nú reyndar æaður en ég fór út...
Og hvað er málið með Bíómiðaverðið.. og enn verra vitiði þið hvað kostar að leigja spólu.. jámm 650kr ef það hefur ekki ekki hækkað í þessum skrifuðu orðum.. og í ljósi þess sem ég var að lesa þessa okur síðu þarna þá ætla ég bara að koma með dæmi sjálf..

Nings Akureyri um seinustu helgi.. keypti mér nautakjöt í svartpiparsósu og kók í dós tæplega 1800kell takk fyrir.. og þetta var ekki stór skammtur og ég fékk bara kínakál og gulrætur með smá nautakjöti.. og diskurinn var svo lítill að sósan flæddi yfir.. já passa sig að hafa diskinn ekki of stóran þá myndi þetta virðast enn minna.. jebb ég ætla ekki að versla aftur þarna.. frekar fer ég á subway.. þó að það sé nú ekkert ódýrt þá veit ég allavega hvað ég fæ fyrir peninginn þar!!

Já maður gæti þrausað um þetta allan daginn en maður nennir því bara ekki.. við íslendingar erum alltof léleg í svona dóti við gefumst upp um leið..  En það er nú ósköð lítið sem við gætum gert við verðum nú víst að borða gætum hjólað í vinnuna.. en hver nennir því í 10 stiga frosti? þannig við höldum bara áfram að borða alltof dýran mat og keyra á ofurháu bensínverði..

Annað í fréttum.. Ekkert merkilegt svosem.. slappaði bara af þessa helgi gerði það einnig seinustu helgi.. er að hugsa hvað skal gera næstu helgi.. var búin að lofa mér í hrekkjavökupartý.. en langar að fara til Helgu minnar en það kostar óhemju mikið að fljúgja og ég treysti ekki bílnum mínu í langkeyrslur.. hann er á tæpasta vaði greyið.. þannig það er alveg spurning hvað mun gerast..

Er búin að kúra hjá kisunum mínum í nokkra daga. Pabbi er úti á spáni þannig ég gisti útí sveit hjá sædu dúllunum svo þær séu nú ekki einar.. og þær eru æði, sakna þeirra geggjað mikið.. næstum jafn mikið og ég sakna Gunna minns.

Hmm já ég smakkaði Kengúrukjöt á Greifanum um dagin og það var bara mjög gott.. fæ mér örugglega svoleiðis aftur þó að það hafi verið doldið dýrt en maður má nú alveg leifa sér eikkað svona einstöku sinnum.

Lítið annað í fréttum nema að ég er alltof löt í að hitta fólk.. er bara alltaf eikkað búin á því þegar ég er búin í vinnunni.. fer bara heim og uppí rúm og nenni ekki neinu.. en ég er samt byrjuð í ræktinnu og mæti þangað 2-3svar í viku klukkan 8 um morgunin sem má þykkja gott af mér því ég er ekki beint morgunmanneskja..hehe

jæja bliss

Undur og Stórmerki gerast..Ásta Dröfn Björgvinsdóttir

Ég hef komist að niðurstöðu um að það að ég sé bara að verða gömul, jamm kommst að þessu um daginn og hef pælt í þessu núna hvert skiptið sem ég fæ bílinn hennar mömmu lánaðan.. en þannig er nú það  að hún hlustar á Bylgjuna þannig ég hlusta á Bylgjuna þegar ég fæ bílinn og mér finnst bara fínt að hlusta á Bylgjuna.. játs ég er orðin gömul, næst byrja ég að hlusta á rás 2 og loks gufuna og þá má bara pakka mér niður.

En annars lennti ég í skrítnu atviki með Bylgjuna góðu.. Ég var að keyra heim og svona rétt áður en ég keyri inní götununa mína þá byrjar þetta horbjóðslag með Einar Ágúst var ég nú bara fegin þegar ég gat slökkt á bílnum og hoppað útí kuldann.. en daginn eftir þegar ég fer að skúra og kveiki á bílnum haldiði að lagið sé bara ekki í spilun og bara eins og ekkert væri sjálfsagðara.. ég held að Bylgjan hafi gert þetta viljandi.. spúkí

Annars gengur lífið bara sinn vanagang, ég geri ekkert neitt nema vinna og vinnna og svo fer ég heim og horfi á sjónvarpið fer að sofa vakna með herkjum og fer aftur að vinna.. Er síðan búinn að djamma allar helgar síðan ég kom heim, og veit eigi hvað skal gera þessa helgi, slappa af kannski.. já væri nú alveg til í það, bara gera ekki neitt fara bara ekki úr náttfötunum :)

jæja nenni ekki að blogga meira, reyni að gera þetta aftur í bráð


Bliss

Ísland.. FreðnalandÁsta Dröfn Björgvinsdóttir

Afhverju eru bensínlokin ekki bara á sömu hlið á öllum bílum, maður spyr sig.. Þá þyrfti maður nú ekki að vera að pæla í því þegar maður kemur á bensínstöðina.. En þetta er kannski einhver brella, hvoru megin ætli sé betra að vera með lokið??  Bílstjórmegin mundi ég halda stutt labb.. kannski vilja þeir að við löbbum þannig við vitum hvað vig eigum gott að vera á bíl..


Jæja búin að vinna í Mössubúð í tæplega viku, gengur bara mjög vel, ekki búin að gera neinar alvarlegar vitleysur ennþá.. Langar að kaupa mér fullt af skóm, en má það ekki, er að spara fyrir útlöndin sem koma eftir 107 daga..
  Hlakka til að hitta Gunna, er fatin að sakna að hafa hann ekki hjá mér, bara að horfa á tv eða eikkað.. En hundrað dagar eru ekki svo lengi að líða.. allavega koma jólin alltaf strax

Fór á alvöru íslenskt fyllerí í gær, það var geggjað gaman, nema það er kalt úti!!  Og það var enginn í bænum sem var leiðinlegt en ég skemmti mér vel og um það snýst þetta nú... fann síðan gamlan bekkjarfélaga hann Tomma, og hann reddaði mér fari heim sem var nú ágætt því ekki nennti ég að labba heim.. Og mér var orðið doldið kalt á því að standa fyrir utan Dátann..
  jæja ég sofnaði um leið og ég lagðist á koddan og svaf til 10 var bara hress, keypti mér alvöru sveitann hamborgara og jáhh hann var góður.. skellti mynd í tækið.. eða tölvuna og horfði á hana með mikilli athygli mjög góð mynd.. Knocked up

Er ennþá í rúmminu að horfa á Californiacation,  sem er skemmtilegir þættir.. er að borða kaldar frenskar og er að hugsa um að borða seinustu bitana af burgernum, því þó að það hljómi ekki vel þá er kaldur hamborgari geggjað góður.. allir að prófa það á morgun.. kaldur hamborgari með köldum frönskum og volgu kóki újeah.. hehe

Er að hugsa um að horfa á einn þátt i viðbót og fara síðan að taka mig til fyrir matarboð, ekki gott að mæta með djammmálningu gjærdagsins eða hvað..

bliss

p.s. smá update kláraði hamborgarann og hann var mm góður!!

Er ég kem heim í Búðardall...Ásta Dröfn Björgvinsdóttir

Góðan daginn

Þá er maður komin heim í heiðardalinn. Ferðin heim gekk bara rosa vel, 8 tíma flugið var bara 7 tímar en ég náði voða lítiða að sofna á leiðinni. Loksins þegar ég var komin í stuð til að fara að sofa þá byrjaði barnið við hliðina á mér að grenja og grenjaði alla leiðina heim.. svaka stuð.. sérstaklega fyrir greyið móðurina.. Hún verður örugglega með hiksta næstu vikuna.

Helga mín kom síðan og sótti mig, voða góð að vakna klukkan 4 um nóttina til að koma og sækja mig. Það var síðan talað allaleiðna heim á Hvanneyri þar sem Helga á heima og síðan var talað meira og svona.. Síðan fórum við aftur til Höfuðborgarinnar og þar var markmiðið að kauða sveittan hamborgara, því ég hef ekki fengið svoleiðis í 2 mánuður.. sem er náttla allltof langur tími. Við keyrðum um bæin í leit af sveittustu sjoppunni og varð BSÍ fyrir valinu. Við fengum þennan ágætis Snæðing eins og þetta var kallað þar.. Nema hann var ekki nógu sveittur! Jæja við skoðuðum í nokkrar búðir og fórum síðan í heimsókn til Möggu og Heiðrúnar, og þar var talað aðeins meira. Síðan var haldið út á flugvöll þar sem beið mín einkaþota.. Nei ekki alveg en Lína vinkona var svo góð að splæsa á mig flugi heim, og það var nú gott að komast heim í Áshliðina. Ég týndi upp gjafirnar handa liðinu, og allir voru rosa glaðir. Síðan fór ég að heimsækja kisurnar mín sem eru hjá pabba, eða fór að heimsækja pabba þar sem kisurnar eru.. hehe Þær könnuðust nú aðeins við mig og snurfusuðust í kringum mig og vildu fá smá klapp og knús.

Jæja síðan fór ég nú bara heim og spjallaði aðeins við Gunnsann minn, og síðan grjót sofnaði ég og svaf fram á hádegi í dag.. sem var nú bara alveg ágætt eftir 36 tíma ferðalag frá Orlando í Áshlíðina.

Ég byrjaði síðan að vinna í dag. Er komin með tvær vinnur, Mössubúð og að skúra í VMA, hehe Ég byrja að skúra í dag og síðan ætla ég að kíkja í mössubúðina á morgun, en Massa verður ekki við fyrr en á miðvikudaginn. Úff ég á eftir að kaupa alltof marga skó á næstu mánuðum.. híhí

Bliss


Blogg hvað er það..Ásta Dröfn Björgvinsdóttir

Já ég veit ég er löt við að blogga, en enda hef ég voða lítið að blogga um.

En það er allavega komið á hreint að ég má ekki vinna hérna úti, sem er frekar fúlt því mig langar að vinna. En ég ætla að athuga hvort ég komist inní fjarnám hjá Háskóla Íslands. Síðan finn ég mér kannski einhverja sjálfboðavinnu, svona til að stytta mér stundir. Kannski í einhverju dýraskýli, þvo lúsugum hundum og svona.

Engin verslunarmannahelgi hérÞað var skrítið að fara ekki í fyllerý um Versló, en í staðinn þá fórum við á ströndina með Casy Og Rebeccu.. Úff þvílíkur hiti. Ég fékk smá meiri brúnku og Gunnsi fékk rauðku á bakið hehe. En þetta var fínasta strandarferð vorum alveg í 3 tíma og ég brann ekki.. Ég gafst samt fljótt upp á því að liggja í sólbaði.. ég þoldi ekki þenna hita, þannig ég var mest að skoppast í sjónum, og síðan hjálpaði ég Gunna með sandkastalann mikla, eða ég sá um að halda sjónum í burtu.. hehe

Úff já svo má nú ekki gleyma ferðinni í Busch Gardens, sem er svona skemmtigarður með rússíbönum og síðan er hann líka dýragarður.. Ég fór í 2 rússíbana, og það var alveg ógisslega gaman, því ég hafði aldrei farið í svoleiðis áður. Éh var samt frekar fúl að fólkið var ekki til í að fara í fleiri rússíbana, ég vildi fara í hina 4 sem voru eftir en það verður bara að bíða betri tíma.. Treysti á Dagnýju til að fara memmér í alla Gaurana... Ehaggi Dagný?
En að sjá öll dýrin stóð samt uppúr.. enda vita allir sem þekkja mig hvað ég hef mikin áhuga á dýrum. Já ég var að setja inn myndirnar af þessu öllu, en samt engar rússíbana myndir. Þannig allir geta skoðað myndirnar. Ég set síðan inn fleiri myndir á eftir

Bliss

Aðalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur