Okursmokur..Ásta Dröfn Björgvinsdóttir
Var að lesa um 100 færslur á Okursíðu Dr Gunna .. Og ég hef komist að niðurstöðu, við íslendingar erum greinilega alveg stór skrítið fólk, við gerum ekkert annað en að hvarta og hveina (kvarta og kveina?) en við gerum nu ósköð lítið í málinu.. ég man nú ekki fyrir svo löngu að það var eikkað verið að lækka einhverja matarskatta.. en ég held að það hafi nú alveg fallið yfir sig því mér finnst allt vera enn dýrara núna.. , þstta var nú reyndar æaður en ég fór út...Og hvað er málið með Bíómiðaverðið.. og enn verra vitiði þið hvað kostar að leigja spólu.. jámm 650kr ef það hefur ekki ekki hækkað í þessum skrifuðu orðum.. og í ljósi þess sem ég var að lesa þessa okur síðu þarna þá ætla ég bara að koma með dæmi sjálf..
Nings Akureyri um seinustu helgi.. keypti mér nautakjöt í svartpiparsósu og kók í dós tæplega 1800kell takk fyrir.. og þetta var ekki stór skammtur og ég fékk bara kínakál og gulrætur með smá nautakjöti.. og diskurinn var svo lítill að sósan flæddi yfir.. já passa sig að hafa diskinn ekki of stóran þá myndi þetta virðast enn minna.. jebb ég ætla ekki að versla aftur þarna.. frekar fer ég á subway.. þó að það sé nú ekkert ódýrt þá veit ég allavega hvað ég fæ fyrir peninginn þar!!
Já maður gæti þrausað um þetta allan daginn en maður nennir því bara ekki.. við íslendingar erum alltof léleg í svona dóti við gefumst upp um leið.. En það er nú ósköð lítið sem við gætum gert við verðum nú víst að borða gætum hjólað í vinnuna.. en hver nennir því í 10 stiga frosti? þannig við höldum bara áfram að borða alltof dýran mat og keyra á ofurháu bensínverði..
Annað í fréttum.. Ekkert merkilegt svosem.. slappaði bara af þessa helgi gerði það einnig seinustu helgi.. er að hugsa hvað skal gera næstu helgi.. var búin að lofa mér í hrekkjavökupartý.. en langar að fara til Helgu minnar en það kostar óhemju mikið að fljúgja og ég treysti ekki bílnum mínu í langkeyrslur.. hann er á tæpasta vaði greyið.. þannig það er alveg spurning hvað mun gerast..
Er búin að kúra hjá kisunum mínum í nokkra daga. Pabbi er úti á spáni þannig ég gisti útí sveit hjá sædu dúllunum svo þær séu nú ekki einar.. og þær eru æði, sakna þeirra geggjað mikið.. næstum jafn mikið og ég sakna Gunna minns.
Hmm já ég smakkaði Kengúrukjöt á Greifanum um dagin og það var bara mjög gott.. fæ mér örugglega svoleiðis aftur þó að það hafi verið doldið dýrt en maður má nú alveg leifa sér eikkað svona einstöku sinnum.
Lítið annað í fréttum nema að ég er alltof löt í að hitta fólk.. er bara alltaf eikkað búin á því þegar ég er búin í vinnunni.. fer bara heim og uppí rúm og nenni ekki neinu.. en ég er samt byrjuð í ræktinnu og mæti þangað 2-3svar í viku klukkan 8 um morgunin sem má þykkja gott af mér því ég er ekki beint morgunmanneskja..hehe
jæja bliss
Athugasemdir
1
dagný skrifar:
þú ert sko ekki skemmtileg ef þú dissar halloween partýið!!!!:(
28. október 2007 klukkan 20:15
2
Ásta skrifar:
Ég vil nú ekki valda Dagný vonbrigðum þannig ég fer bara þarnæstu helgi til Helgu :)
29. október 2007 klukkan 21:21
3
Guns skrifar:
já ég sakna kisnanna alveg rosalega verð ég að segja... já ég sakna þín líka Ásta mín :). Draumurinn væri að ég væri að kúra á sunnudagsmorgni uppi í rúmmi núna með ástu og báðum kisunum og við værum ný búin að panta dominos franskar og búin að kaupa sveittan borgara frá mellunesti. ÚFFFF væri ég til í það.
Guns
Guns
30. október 2007 klukkan 17:14
6
Ásta skrifar:
Hmm er ekki alveg búin að ákveða það ennþá..
02. desember 2007 klukkan 21:56
7
Ásta skrifar:
Og það e rnú lengra síðan þú bloggaðir kjáni!!
02. desember 2007 klukkan 22:01