Brotin Tá?Ásta Dröfn Björgvinsdóttir
Já auðvita tókst mér að brjóta á mér tánna. Var nú nokkuð viss um að ég væri ekki brotin en það var mjög vont að stíga í fótin, eins og það er nú oftast eftir að maður sparkar tánni í eikkað.. En mér var illt í allt gærkvöld og svaf síðan mjög takmarkað í nótt. Þannig í morgun klukkan 8 þá ákvað ég að fara uppá slysó, bara svona til að tjékka á essu. Var rétt sest niður þegar það var kallað á mig. Ungur læknir kom síðan og skoðaði mig. Hann tosaði og ýtti allavega á tásurnar mínar (nokkuð viss um að hann sé með smá táfetis hehe) Hann endaði svo á að senda mig í röntgen, en við vosum sámmala um að ég væri nú örugglega ekki brotin. En auðvita var í brotin, ég meina hvað annað.. Ég er nú einu sinni Ásta Dröfn og henni tekst alltaf að gera eikkað svona. Og í þokkabót þá er þetta táin hliðiná litlu tánni, bara í tvennt!! eða svona ská tvennt!!Mætti síðan galvösk í vinnuna, en entist ekki mjög lengi var farin heim klukkan hálf 1. Var ekki alveg að meika að vera svona á röltinu fram og til baka og upp og niður stigana. Er núna með nokkuð góðan, stanslausan verk í fætinum. Er ekki alveg að fíla það sko.
En annað í fréttum er ekki mikið. Hálfur mánuður í sveitina, og 4 vikur í Gunna minn
Bara nokkrir dagar eftir af vinnunni og mér tekst að brjóta á mér tánna. Maður er svo mikill snillingur!! Bliss
Athugasemdir
1
Inga Huld skrifar:
Obbosí..ekki gott á þig..en hey..þú manst að við verðum að reyna að hittast áður en þú ferð út.. sakna þín gríðarlega..ég reyndar kem norður helgina 23.-25.maí..ertu upptekin þá? =) C U
08. maí 2008 klukkan 08:17
2
Ásta skrifar:
Mjög upptekin þá, verð í sveitinni kjánaprik.. En ég verð í rvk 3.júní eftir kvöldmat.. og eikkað 4.júní áður en ég fer í flug.. reyni að hitta þig þá :)
08. maí 2008 klukkan 15:03
3
Eva & Kobbi skrifar:
góða ferð út, biðjum svaka vel að heilsa Gunna :)
04. júní 2008 klukkan 07:40