Ásta og Drekinn ElliðiÁsta Dröfn Björgvinsdóttir

Fékk þessa undarlegu þörf fyrir að blogga, bara alevg uppúr þurru.. Heilinn minn heldur að hann hafi eikkað merkilegt að segja.. látum okkur sjá

Það hefur ekki mikið dregið á daga mína síðan ég bloggaði seinast. Ég er allvega komin heim frá USA.. hehe 

 Versló gekk yfir í einum hamagangi. Og ég er byrjuð að vinna í Dogma again! Læt mér leiðast þar á daginn og svo laumast ég við skúra á kveldin.  

Ég er að fara í 9 einingar í fjarnámi, tvö stæ áfanga og einn efnafræði, ég er að trekkja mig í gang fyrir Háskólan á næsta ári.. Já ég er eimmitt að vinna og í fjarnámi afþví að ég komst ekki inn í HÍ því mig vantaði stærðfræðieiningar til að komast inn á Raunvísindadeild. En hvað með það ég djamma þá bara eitt ár í viðbót á Eyrinni minni.

Síðan er Gunni minn að koma heim í október mér til mikillar gleði.. Maður saknar hans nú stundum. Þannig það verður ósköp gott að fá hingað til sín aftur. Ég er ekki komin með nákvæma dagsetningu ennþá.

Ég komst að því enn einu sinni að ég á alltof mikið af skóm... ég er bara með um 50-60 pör hérna heima og ég held að ég sé með um 50 pör í geymslu hjá pabba... og 70% eru strigaskór hehe... úff hvað á maður að gera við þetta þegar maður flytur í pínulitla stúdentaíbúð??

Annars er bara róleg helgi framundan, þarf samt kannski að taka upp kartöflur með mömmu.. það er alltaf stuð að taka upp kartöflur.. hehe

Jæja nóg komið af ritræpu.. hver veit nema þetta gerist einhverntíman aftur?!?  Dúmmdúmmdúmm

Ásta með hor og slef



Athugasemdir

1
dagga drull skrifar:
afsakadu horid og slefid haha.... eg kem heim a fimmtudaginn:D
09. september 2008 klukkan 16:29

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Það eru

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur