Bara tónlist og lætiÁsta Dröfn Björgvinsdóttir
Jæja gott fólkBara stuð á mér í sveitinni.. Horfi á Júrívisjón í gær.. Var nú pínu fúl að Silvía komst ekki áfram.. Enjeg held að við eigum aldrei eftir að komast inní þessa keppni.. En jeg legg til að við sendum Pál Óskar á næsta ári.. hvað finnst ykkur um það?
Já eins og vanalega þegar jeg er hérna í sveitinni, þá kemst jeg alltaf að því sama.. Rollur eru ekkert svo gáfaðar.. En sumar eru bara krúttlegar.. t.d. í gær þá var jeg að dotta í garðanum og þá kemur þessi rolla og byrjar að sniffa af mér.. og hún er bara að gera það heillengi, sama hvað jeg ýti henni í burtu.. og síðan var hún bara alltaf eikkað að sniffa af mér eða bíta í skóna mína og buxurnar.. haha..
Það snjóaði hérna í gær og núna er sko alveg drullukalt hérna.. en jeg er alltaf vel dúðuð og svona, með húfu og vettlinga.. og náttúrulega í ullarsokkum með sér íslensku munstri hahh..
En jæja jeg ákvað að vera með í þessu tónlistar rugli en jeg nennti nú samt bara að hafa þetta 10 lög.. svo hérna gott fólk..
1. skref: Settu MP3spilarann/iTunes whatever á Shuffle
2. skref: Skrifaðu niður líinu úr fyrstu 25 lögunum sem koma og skiptir engu hversu vandræðalegt lagið er
3. skref: Gerðu það að bloggi og láttu alla sem að þú þekkir giska í hvaða lagi og eftir hvern línan er
4. skref: Strikaðu út þau lög sem að einhver giskar rétt (undirstrika þegar aðeins flytjandi/nafn lags er nefnt)
5. skref: Ekki nota Google, og svaraðu í skoðanir hvaða lag þú heldur að sé til umræðu.
1.
2.
3.
4. I can hear the silence Of what we used to be.
5.
6.
7.
8. Suddenly, I was free, You left me without anything
9.
10. I'm ever upper class high society AC/DC
11.
12.
13.
14.
15.
16.
17. Buy me a trip to the moon, So I can laugh at my mistakes
18. I want somebody to share, Share the rest of my life
19.
20.
Bliss
Ískalt í sveitasælunni..Ásta Dröfn Björgvinsdóttir
Halló fólk!!Já jeg er að dandalast í sveitinni.. Jeg var valla mætt hérna þegar allar kindurnar fóru að bera.. Og viti menn ekkert að lömbunum gátu komið rétt, þannig jeg var bara á fullu að sækja labbir og læti bara..
En annarz er lífið hérna í sveitinni bara nokkuð rólegt.. en ekki jafn rólegt og venjulega.. en núna er 3 gríslingar hérna sem hafa smá hátt.. og þeir stoppa ekki á spurningunum.. Hvadda geeeera? Afhverju ertu að gera þetta? Hey lambið er að koma.. halló lambið er að koma!! En á nóttunni er jeg alveg ein, eða allavega ein með rollunum.. og hefur það bara gengið nokkuð vel.. Reyndar er svoldið erfitt að vaka á nóttunni.. en þá bara legst jeg í garðann ef ekkert er að gerast.. maður sefur ekki meira en í svona 10 mínútur þar, því hann er ekkert svo þægilegur.. og mig dreymir alltaf einhverja skýtna drauma.. hehe
En já jeg hef ekki drukkið neitt kók síðan jeg kom hingað.. en jeg er reyndar að drekka fyrsta pepsi glasið mitt.. og viti menn það er ekkert gott.. Ó ok þetta var pepsi max.. enda var þetta eikkað óvenju vont.. Kristall plús er það sem jeg drekk mest af núna.. og hann er nú bara alveg ágætur..
En jæja þetta er nó bili.. en jeg kem aftur með fleiri fréttir úr sveitinni..
Bliss
Gimbur= stelpu lamb.. og Hananú!Ásta Dröfn Björgvinsdóttir
Gósan das..Jæja þá er komið að því jeg er að fara í sveitina á eftir.. en fyrst þarf jeg að gera fullt af hlutum.. Til dæmis í gær þegar jeg var að fara að pakka niður þá fann jeg ekki neitt af sveitafötunum mínum sem jeg var búin að taka frá í fyrra.. en sem betur fer fann jeg tvö stykki af buxum sem jeg get farfið með.. einar eru sko eldgamlar af mömmu.. og þær ná bókstaflega uppað brjóstum.. en hey maður þarf bara að vera svona í semi tísku þarna í sveitinni.. En já þannig jeg þarf að fara í hjálpræðisherinn og gá hvort að jeg finni mér einhver föt.. bæði fyrir sveitina og líka bara svona hérna heima á ak..
Jeg þarf líka að kaupa mér einnota sokkka.. og ýmislegt fleira.. var að pæla í að kaupa mér harðfisk til að hafa með.. gott svona til að narta í á meðan maður bíður eftir lömbunum.. og síðan .arf jeg að kaupa mér sjampó.. tími ekki að fara með rándýra sjampóið mitt í sveitina.. en já þá held jeg að þá é nokkurn vegin komið..
En jeg ætla að taka tölvuna memmér.. þannig jeg get sofnað yfir Futurama eða Einkalíf platna.. og svo ætla jeg náttla að blogga smá svona fyrir ykkur fólk.. og reynndar fyrir mig líka.. það er nebbla dáldið stuð að lesa gamlar færslur eftir sjálfan sig.
Jæja
Bliss
Varlega...Ásta Dröfn Björgvinsdóttir
Jæja fólk enn og aftur hef jeg skipt um bloggsíðu... en núna held jeg bara að jeg verði hér.. hér er allt sem jeg þarf.. Myndir og blogg.. En síðan er enn í vinnslu svona þannig séð.. Fleir myndir eiga eftir að bætast við og svona.. og síðan týnist þetta svona til héðan og þaðan.. en vonum bara að fólki líki vel þessa..En svona til að slá á léttu nóturnar þá var gærdagurinn minn mjög fyndinn.. Jeg var með mikin aftansöng. og þá meina jeg mikinn.. je þorði ekki að kveikja á kerti.. hélt að herbergið mitt myndi bara fuðra upp.. Samt svona fyrrihluta dags voru þetta ósköð meinlaus prump.. allavega var nánast engin lykt af þeim.. en síðan þegar líða tók á kveldið þá breyttist þetta í hveraprump af verstu gerð
Jájá svona er þetta bara.. en svona til að minna fólk á þá er jeg að fara í sveitna á föstudaginn.. jeg ætla nú samt að reyna að blogga svona annarslagið þó svo að jeg hafi nú kannski ekki mikið að segja í sveitinni.. þetta verður kannski einhverveginn svona:
Í dag tók jeg á móti 17 lömbum, 10 hrútum og 7 gimbrum. 12 af lömbunum voru hvít en hin voru flekkótt og eitt mórautt.. spennandi já..

Já höfum þetta nó í bili en endilga flakkið frjálslega um síðuna og skoðið myndirnar
Bliss